

Við leitum að góðu fólki í hópinn okkar á Gráa kettinum.
Grái kötturinn leitar að starfsfólki
Okkur á Gráa kettinum vantar skemmtilegt, duglegt og jákvætt fólk í hópinn.
Við leitum að fólki í þjónustu og eldhús sem hefur gaman af mannlegum samskiptum, kann að vinna í hraða og vill taka þátt í notalegu og lifandi vinnuumhverfi í miðbæ Reykjavíkur.
Reynsla er kostur en mestu skiptir að þú sért áreiðanleg/ur, lausnamiðuð/aður og komir með gott viðmót í vinnuna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur m.a. í sér:
– Að taka vel á móti gestum og veita góða þjónustu
– Afgreiðslu, kaffigerð og almenn störf í sal
– Vinna í eldhúsi eftir þörfum
– Frágang, þrif og að halda vinnusvæði snyrtilegu
– Að vinna með öðru starfsfólki í hraða og lifandi umhverfi
– Að fylgja verklagi, hreinlætisreglum og gæðakröfum staðarins
– Að leggja sitt af mörkum til að skapa hlýlegt og gott andrúmsloft á Gráa kettinum
Enska
Íslenska










