SIGLÓVEITINGAR
SIGLÓVEITINGAR
SIGLÓVEITINGAR

Matreiðslumaður óskast

Við leitum að metnaðarfullum og áreiðanlegum matreiðslumanni til starfa í lifandi og faglegu eldhúsi. Um er að ræða fjölbreytt starf á vöktum þar sem unnið er með à la carte þjónustu og áhersla lögð á gæði, snyrtimennsku og gott skipulag.

Helstu verkefni

  • Matreiðsla og undirbúningur rétta í à la carte eldhúsi
  • Daglegur undirbúningur og frágangur í eldhúsi
  • Eftirlit með gæðum, framsetningu og hráefnum
  • Þátttaka í skipulagi og almennum verkefnum eldhúss
  • Fylgja verklagi og kröfum samkvæmt HACCP

Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum í à la carte eldhúsi nauðsynleg
  • Þekking á HACCP og hreinlætiskröfum í eldhúsi
  • Sveinspróf í matreiðslu er æskilegt, en ekki skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
  • Verður að geta hafið störf strax

Við bjóðum

  • Starf í skemmtilegu og faglegu vinnuumhverfi
  • Vaktavinnu
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Húsnæði í boði
  • Tækifæri til að vinna með öflugu teymi

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn og ferilskrá sem fyrst.

Auglýsing birt14. maí 2026
Umsóknarfrestur21. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Gránugata 19, 580 Siglufjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar