

Verslunar og lagerstjóri
Skeljungur óskar eftir að ráða metnaðarfullan og skipulagðan verslunar- og lagerstjóra til starfa í Skútuvogi 1, 104 Reykjavík. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér þjónustu við viðskiptavini í verslun, umsjón með lager og önnur tilfallandi verkefni. Leitað er að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, hefur ríka þjónustulund og vill taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu Skeljungs.
Markmið Skeljungs er að hafa innanborðs áhugasamt og hæft starfsfólk sem leggur sitt af mörkum til að gera félagið sífellt betra. Hlutverk Skeljungs er að þjóna orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og öruggan hátt í sátt við samfélag og umhverfi.
Starfsemi Skeljungs er á sviði sölu og þjónustu til fyrirtækja og nær meðal annars til dreifingar, innkaupa og heildsölu á eldsneyti, Shell smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði og öðrum vörum og þjónustuþáttum. Þjónusta við stórnotendur, útgerðir, flug og verktöku.
Skeljungur ehf. er umboðsaðili Shell smurefna á Íslandi og fer einnig með eignarhald í EAK og Fjölveri. Skeljungur er hluti af samstæðu Styrkás ásamt Kletti – Sölu og þjónustu, Stólpa Gámum og Hreinsitækni.
• Þjónusta og sala til viðskiptavina í verslun
• Yfirumsjón með lager og skipulagning útkeyrslu
• Skipulag og utanumhald birgða
• Almenn tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri
• Góð þjónustulund og samskiptahæfni
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Reynsla af verslunar- eða lagerstörfum er kostur
• Almenn tölvukunnátta
Niðurgreiddur hádegisverður
Íþróttastyrkur
Heilsufarsmælingar
Íslenska





