
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Verkstjóri Vinnuskóla Akraneskaupstaðar
Auglýst er eftir verkstjóra í Vinnuskólann á Akranesi fyrir sumarið 2024.
Verkstjóri sér um daglegan rekstur Vinnuskólans og er tengiliður milli flokkstjóra.
Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins.
Markmið vinnuskólans er að gefa unglingum kost á sumarstörfum í umhverfi sem einkennist af fræðslu, kennslu, þjálfun og tómstundum. Lögð er áhersla á samskiptareglur, ástundun og vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, samstarfsfólki og bæjarbúum. Einnig eru grundvallaratriði í vinnubrögðum kynnt og notkun verkfæra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn garðyrkjustörf í bæjarlandinu.
- Umsjón með daglegum rekstri.
- Koma vinnu og verkefnum af stað og hafa yfirlit yfir verkefnastöðu.
- Halda utan um vinnutíma og skrár.
- Vera virkur tengiliður og upplýsingafulltrúi.
- Efla liðsheild og vinnuvirðingu meðal starfsmanna Vinnuskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að vera 24 ára eða eldri.
- Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
- Gott er að hafa mikla samskiptahæfni og skipulagsfærni.
- Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og samviskusamur.
- Áhugi á umhverfismálum þarf að vera til staðar.
Auglýsing birt28. febrúar 2024
Umsóknarfrestur19. mars 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
laugarbraut 6
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSkipulagTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Verkstjóri garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Jarðboranir

Flokkstjóri garðyrkjufólks
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkstjóri á starfsstöð Samskipa í Vestmannaeyjum
Samskip

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

Verkstjóri brettadeildar
Umbúðamiðlun

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Fjölbreytt og vel borguð útivinna / General Laborer
Allt fyrir garðinn ehf.

Starfskraftur í steinsmiðju óskast!
Fígaró náttúrusteinn

Vélamaður í malarnámu
Steypustöðin