

Verkefnastjóri Virkni og vellíðan
Virkni og vellíðan er verkefni á vegum Kópavogsbæjar sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í sveitarfélaginu. Þátttakendur í verkefninu Virkni og vellíðan fá tækifæri á því að stunda hreyfingu í því félagi sem stendur næst heimili þeirra í Kópavogi. Okkar helsta markmið er það að stuðla að bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu bæjarbúa í Kópavogi og stuða jafnframt að farsælli öldrun.
Verkefnastjóri þjálfar, stýrir og heldur utan um verkefnið með áherslu á félagsmiðstöðvar eldra fólks í Kópavogi. Viðkomandi heldur utan um hreyfiframboð í félagsmiðstöðvum Kópavogs og er tengiliður Virkni og vellíðan við þær. Verkefnastjóri starfar náið með öðrum verkefnastjórum Virkni og vellíðan og hjálpar til við ýmis verkefni og viðburði á vegum verkefnisins.
- Aðstoðar við sameiginleg verkefni Virkni og vellíðan um heilsueflingu eldri borgara í Kópavogi
- Þjálfar þátttakendur í íþróttahúsunum sem og félagsmiðstöðvunum fyrir hádegi alla virka daga
- Ber ábyrgð á að fylgt sé eftir stefnum Kópavogsbæjar er snúa að lýðheilsu og heilsueflingu íbúa í sveitarfélaginu
- Ber ábyrgð í samstarfi við aðra verkefnastjóra Virkni og Vellíðan á skipulagi, utanumhaldi og almennri þjálfun í verkefninu
- Útbýr og skipuleggur þjálfunar- og markaðsáætlun fyrir verkefnið í samráði við deildarstjóra íþróttadeildar og sviðsstjóra menntasviðs
- Ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd á dagskrá í félagsmiðstöðvum eldri borgara, verkefna og viðburða Virkni og vellíðan
- Tekur þátt í verkefnum og stuðningi við forvarnir tengt áætlunum bæjarins um lýðheilsu og heilsueflingu íbúa í Kópavogi
- Tekur þátt í mælingum á þátttakendum Virkni og vellíðan í samráði við þá fagaðila bæði innan og utan sveitarfélagsins sem framkvæma mælingarnar
- Tekur þátt í fræðslu og þjálfun til íbúa í Kópavogi
- Ber ábyrgð á valæfingum í Virkni og vellíðan í samstarfi við aðra verkefnastjóra og kemur á heildrænni nálgun hvað varðar hreyfiframboð fyrir aldurshópinn 60 ára og eldri í Kópavogi
- Situr samráðsfundi með starfsfólki mennta- og velferðasviðs og íþróttafélaga í Kópavogi
- Vinnur í góðri samvinnu við þær félagsmiðstöðvar sem samkomulag er við um þróun og framkvæmd verkefnisins Virkni og vellíðan
- Stuðlar að jákvæðri ímynd verkefnisins Virkni og vellíðan fyrir bæjarbúum og/eða öðrum hagsmunaaðilum verkefnisins
- Sinnir öðrum verkefnum sem yfirmaður felur verkefnastjóra og fellur innan starfssviðs
- Háskólamenntun á sviði íþrótta- og heilsu- eða lýðheilsufræða
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Reynsla af þjálfun eldra fólks
- Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
- Reynsla og þekking á úrvinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna æskileg
- Góð tölvukunnátta
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
36 klukkustunda vinnuvika.
Íslenska









