

Verkefnastjóri tækni- og byggingarmála
Grundarfjarðarbær leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi til að stýra fjölbreyttum verkefnum á sviði tækni- og byggingarmála. Framundan eru mörg spennandi verkefni. Um er að ræða fjölbreytt starf sem býður upp á einstakt tækifæri í lifandi bæjarfélagi í mikilli þróun.
Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á tækni-, umhverfis- og byggingarmálum. Viðkomandi þarf að geta leitt faglega vinnu við framkvæmdir og viðhald mannvirkja bæjarins, sem og hafa frumkvæði og aðkomu að nýjum, óhefðbundnari verkefnum, t.d. í orkuskiptum.
Æskilegt er að viðkomandi geti einnig sinnt lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa eða sé reiðubúinn að afla sér viðeigandi réttinda innan umsamins tíma.
- Yfirumsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum bæjarins, bæði nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum, s.s. við endurbætur fasteigna, gatna- og stígagerð, fráveitumál og blágrænar lausnir.
- Umsjón með orkuskiptaverkefnum á næstu árum, þar sem bærinn leitar nýrra leiða til að spara orku við rafkyndingu mannvirkja.
- Gerð verk- og kostnaðaráætlana, umsjón með verðkönnunum og útboðsmálum, samningum við verktaka og hönnuði.
- Æskilegt er að viðkomandi geti sinnt lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa skv. viðeigandi löggjöf og borið ábyrgð á daglegri starfsemi í byggingarmálum, þ. á m. ábyrgð á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa, skráningu fasteigna og undirbúningi byggingarmála fyrir fagnefnd bæjarins, annað hvort við upphaf starfs eða með öflun réttinda innan ákveðins tíma.
- Samskipti og upplýsingagjöf um verklegar framkvæmdir, orkumál og byggingarmál.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði byggingarmála eða tæknifræði.
- Farsæl reynsla af sambærilegum verkefnum.
- Þekking á góðum stjórnsýsluháttum, lögum og reglum er varða starfssviðið er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
- Rík leiðtoga- og samskiptahæfni.
- Frumkvæði, fagmennska, skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Framúrskarandi tölvukunnátta sem nýtist í starfi, s.s. landupplýsingakerfi, teikniforrit, o.fl.
- Góð færni í íslensku, í töluðu og rituðu máli, og góð enskukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.













