

Verkefnastjóri markaðsmála og auglýsingasölu
Við leitum eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að verkefnastýra sölu á auglýsingum á Innanlandsflugvöllum og viðskiptaþróun þeirra. Viðkomandi mótar og framfylgir markaðs- og samskiptaáætlun með það að markmiði að efla vörumerki okkar og tryggja samræmi í ásýnd og skilaboðum (PR). Verkefnastjóri skipuleggur og stýrir gerð markaðs- og kynningarefnis, frá hugmyndavinnu til framkvæmdar í samráði við framkvæmdastjóra og hefur yfirumsjón með samskiptum við auglýsingastofu og framleiðslufyrirtæki til að tryggja vandaða og skilvirka framkvæmd markaðsverkefna.
Um er að ræða spennandi verkefni í lifandi og fjölbreyttu umhverfi.
Starfsstöð er án staðsetningar.
Helstu verkefni
-
Sölustarf auglýsinga,viðskiptaþróun og uppbygging auglýsingatengsla
-
Mótun og framfylgd markaðsskilaboða
-
Þróun og viðhald á vörumerkjaásýnd og markaðsefni í samstarfi við hagaðila
-
Greining tækifæra og þróun efnis fyrir samfélagsmiðla og aðra miðla
-
Umsjón með ímyndar og kynningarefni, frá hugmyndavinnu til birtingar
-
Umsjón með vefsíðu
-
Skipulag og stjórnun einstakra viðburða
-
Aðstoð við innri markaðsmál sem og kynningar fyrir deildir og svið
-
Samskipti og samstarf við hagaðila, móðurfélag og ferðaþjónustuaðila
-
Önnur tilfallandi störf
Menntun / hæfni
-
Háskólamenntun í viðskiptafræði / markaðsfræði eða sambærileg menntun
-
Reynslu af sölu- og markaðsstarfi nauðsynleg
-
Reynsla af fjölmiðlun kostur
-
Reynsla af hönnun og uppsetning á markaðsefni kostur
-
Framúrskarandi skipulagsfærni
-
Útsjónarsemi, skapandi hugsun og frumkvæði
-
Góð samskiptafærni og hvetjandi hugarfar
-
Góð ritfærni á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur til og með 16. september.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Björk Jakobsdóttir framkvæmdarstjóri Innanlandsflugvalla í netfang [email protected]
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama einstaklinga án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska










