Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

verkefnastjóri innleiðingar

Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir verktaka til að sinna hlutverki verkefnastjóra til að stýra innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi verkefni. Leitað er að áhugasömum og sjálfstæðum starfsmanni með reynslu af verkefnastjórnun sem býr yfir metnaði og sýnir frumkvæði í starfi. Litið er á verkefnið sem tímabundið til eins árs í verktöku með möguleika á framhaldi. Á svæði Félags- og Skólaþjónustunnar eru fimm grunnskólar og fimm leikskólar. Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 6000 manns.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðir vinnu í samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna í samstarfi við teymisstjóra félags- og skólaþjónustu
  • Vinnur að samþættingu á þjónustu fræðslu- og félagsþjónustu í samræmi við lög um farsæld barna
  • Situr fundi er snúa að samræmingu samþættrar þjónustu á svæðinu og stýrir þeim fundum
  • Eflir samvinnu, samþættingu og upplýsingaflæði á milli þjónustuveitenda í sveitarfélögunum með áherslu á snemmtæka íhlutun og vinnur að mótun á nýju verklagi
  • Sér um kynningar og fræðslu á áherslum hugmyndafræði samþættingar fyrir þá sem að farsældinni koma
  • Er í samstarfi og samvinnu við þjónustuveitendur sem vinna með börnum og koma að sæmþættingu þjónustunnar
  • Vinnur árangursmat á verklagi og þjónustu
  • Önnur verkefni sem snúa að samþættri farsældarþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem verkefnastjórnun, menntun á sviði velferðamála, uppeldismenntun eða sambærilegt
  • Haldbær reynsla af verkefnastjórnun
  • Reynsla af vinnu í opinberri stjórnsýslu
  • Þekking og reynsla af starfi í almennri velferðaþjónustu og/eða af skólastarfi í grunn- og leikskóla
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð tölukunnátta
  • Góð tök á íslenskri tungu og hæfni í framsetningu texta
Auglýsing birt6. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsvegur 3, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar