
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Verkefnastjóri í þjónustu- og þróunardeild Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður óskar eftir framsýnum og lausnamiðuðum verkefnastjóra til starfa í þjónustu- og þróunardeild á Fjármála- og þjónustusviði.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd stafrænum lausnum, þjónustu og upplýsingastjórnun.
Verkefnastjóri heyrir undir upplýsingastjóra og starfar í nánu og öflugu samstarfi við teymi deildarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með notkun málaskrár og stuðningur við samræmda skráningu
- Kerfisumsjón og þróun málaskrár, þar á meðal sniðmát, ferlar og kerfisstillingar
- Viðhald og gerð leiðbeininga, verklagsreglna og fræðsluefnis
- Þjónusta, stuðningur og leiðsögn til starfsfólks um málaskrá og tengd kerfi
- Gæðaeftirlit með skjalavistun og skjalaskilum til héraðsskjalavarðar
- Þróun og samræming rafrænna eyðublaða, ferla og tenginga við málaskrá
- Þátttaka í stefnumótun, umbótaverkefnum og þróun innan upplýsingastjórnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla
- Áhugi á stafrænni umbreytingu og þróun ferla
- Mjög góð tölvukunnátta og færni í Microsoft Office 365: Teams, SharePoint, Forms, Lists, Outlook, Planner, Power Automate, Power BI
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvætt viðhorf og drifkraftur
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Hæfni og vilji til að takast á við breytingar og læra nýtt
Fríðindi í starfi
- Góður og sveigjanlegur vinnustaður
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsueflingarstyrkur
Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaAlmenn tæknikunnáttaÁreiðanleikiFagmennskaFrumkvæðiHönnun ferlaInnleiðing ferlaJákvæðniKennslaMannleg samskiptiNákvæmniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinnaVandvirkniVerkefnastjórnunVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Gæðastjóri
Náttúruhamfaratrygging Íslands

Sérfræðingur í UT teymi
Orkan

Mannverk leitar að öflugum og reynslumiklum verkefnastjórum
Mannverk

Verkefnastjóri, tengill og markaðsráðgjafi
Peel auglýsingastofa

Publishing Producer
Fenris Creations

Verkefnisstjóri á Reykhólum
Vestfjarðastofa

UT kennsluráðgjafi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu
Landsvirkjun

Hefur þú reynslu af verkefnastjórnun?
Seðlabanki Íslands

Vörustjóri skjalastýringar
Arion banki

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?
Sveitarfélagið Hornafjörður

Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna
Hnit Artelia