Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin

Verkefnastjóri gagnavöruhúss og -greininga

Steypustöðin leitar að sterkum tæknisnillingi í starf Verkefnastjóra gagnavöruhúss og gagnagreininga.
Starfið heyrir undir fjármálasvið og mun viðkomandi vinna náið með framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Við leitum að aðila með víðtæka reynslu af gagnahönnun og BI-lausnum sem styðja fjármálarekstur. Í starfinu munt þú byggja upp gagnalíkön, sjálfvirkt gagnaflæði og skýr mælaborð, ásamt því að leiða forgangsröðun gagna- og greiningarverkefna með áherslu á gæði og hagkvæmni. Forritunarreynsla er mikilvæg (t.d. SQL/Power BI/Python). Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi; því þarf viðkomandi að vera lausnamiðaður, sýna frumkvæði og búa yfir sterkri greiningarhæfni og góðum fjárhagslegum skilningi. Um framtíðarstarf er að ræða.

Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gagnahönnun og SQL: Víðtæk reynsla af hönnun gagnagrunna, þróun gagnaflæðis, uppbyggingu gagnaferðla flókinni gagnavinnslu í viðskiptaumhverfi með notkun SQL-fyrirspurna.
  • Hönnun og þróun BI-lausna: Leiða þróun á gagnamódelum og viðskiptagreind (Business Intelligence) sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku stjórnenda. Tryggja gæði og áreiðanleika gagna.
  • BI-arkitektúr: Góð þekking og reynsla á gagnalíkönum og skýrslugerð í Power BI eða Tableau.
  • Tækniinnviðir: Reynsla af skýjalausnum gagnavinnslutólum (t.d. TimeXtender) og samþættingum kerfa.
  • Forritunarreynsla: Þekking á Python, DAX-formúlum og útgáfustýringu (Git/Azure DevOps).
  • Fjárhagsleg sýn: Skilningur á áætlanagerð fjármála og samhengi gagna við rekstrarárangur. Rekstur áætlunargerðartóla. Reynsla af rekstri slíkra tóla er kostur (t.d. reynsla af Kepion eða sambærilegum kerfum).
  • Tæknileg rýni og eftirfylgni: Hæfni til að meta gæði og raunhæfni tæknilegra verkefna og veita samstarfsaðilum nauðsynlegt faglegt mótvægi.
  • Gervigreind og sjálfvirknivæðing: Byggja upp hagnýtar gervigreindar- og sjálfvirknivæðingarlausnir sem nýtast í rekstri.
  • Stefnumótun og forgangsröðun: Meta upplýsingatækni- og gagnaverkefni út frá ávinningi, áhættu og rekstrarþörfum. Sjá til þess að tæknin styðji við langtímamarkmið rekstursins.
  • Kostnaðaraðhald og hagkvæmni: Rýna tæknilegar tillögur, verkáætlanir og kostnaðarmat frá þriðja aðila með gagnrýnum hætti. Tryggja að lausnir séu skilvirkar og að fjármunum sé varið af ábyrgð.
  • Miðlun og samskipti: Hæfni til að miðla flóknum tæknilegum lausnum á skýran hátt til hagsmunaaðila á öllum stigum fyrirtækisins. Samræma vinnu milli rekstrar, upplýsingatækni og ytri samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri á vöruhúsi gagna og gagnagrunnum.
  • Reynsla af gagnavinnslu, greiningu og framsetningu gagna með SQL og Power BI eða Tableau.
  • Forritunarreynsla í Python eða R.
  • Góð greiningarhæfni og geta til að umbreyta þörfum reksturs í skýrar lausnir
  • Hæfni til að vinna þvert á deildir og samræma vinnu með ytri samstarfsaðilum
  • Reynsla af Microsoft umhverfi (t.d. Business Central, Power BI, Azure eða Fabric)
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Skipulags- og aðlögunarhæfni í fjölbreyttu umhverfi
Fríðindi í starfi
  • Námskeið og fræðsla
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Hádegismatur
  • Fjölbreytt verkefni
  • Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar