

Vélstjóri á víravél í steypuskála / Maintenance Technician for the Rodding Mill in the Casthous
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í starf vélstjóra á víravél í steypuskála. Vélstjórinn ber ábyrgð á daglegum rekstri, eftirliti og viðhaldi steypuvéla. Starfið felur í sér að tryggja stöðugleika, gæði og öryggi í framleiðsluferlinu, auk þess að styðja við umbótaverkefni og áreiðanleikaferli. Vélstjórinn vinnur náið með framleiðsluteymi, viðhaldssérfræðingum og öðrum teymum til að hámarka nýtingu og draga úr óskipulögðum stoppum.
Verksvið eða meginverkefni starfsins
-
Framkvæma stöðluð eftirlit samkvæmt gátlistum (GÁT-MÁL-ROD 203/204/205) og skrá niðurstöður.
-
Sinna smáviðgerðum og neyðarviðgerðum til að tryggja gang vélanna.
-
Skrá allar viðgerðir og athugasemdir í eAM kerfi.
-
Taka þátt í umbótaverkefnum, vöktun og greiningu á vélbúnaði.
-
Sitja á vikulegum framleiðslufundum og leggja fram tillögur að umbótum.
-
Hafa yfirsýn yfir verk á viðhaldsdögum, samræma skipulag og tryggja að verk séu kláruð.
-
Meta breytingar á plani í samvinnu við viðhaldsleiðtoga.
-
Aðstoða við skipulag og framkvæmd viðsnúnings vélarinnar.
-
Tryggja skýrar boðleiðir og hraðan viðbragðstíma í samskiptum við önnur teymi.
Ábyrgð í starfi
-
Vinna samkvæmt samþykktum ferlum og verklagsreglum.
-
Tryggja að öll verk sem snerta öryggi og heilsu séu framkvæmd, tilkynna frávik ef þau koma upp.
-
Fylgja stöðlum Alcoa og Fjarðaáls.
-
Tryggja skráningu allra viðgerða og eftirlits í eAM kerfi.
-
Samræma og styðja við framkvæmd viðhaldsstoppa og viðsnúnings.
-
Taka þátt í umbótastarfi og breytingastjórnun (VS1–VS4).
-
Virkja hjálparkeðju og kalla inn viðhaldsvakt þegar þörf krefur.
Menntun og/eða réttindi sem krafist er
Iðnmenntun (vélfræði, vélvirkjun, rafvirkjun eða sambærilegt).
Reynsla sem krafist er
A.m.k. 5 ára starfsreynsla, helst í framleiðslu eða viðhaldi.
Hæfni sem krafist er
-
Geta unnið í teymi og sýna frumkvæði.
-
Góð samskiptahæfni og skipulagshæfni.
-
Þekking á áreiðanleikaferlum og viðhaldskerfum (eAM).
-
Góð almenn tölvufærni (Excel, Word, Outlook, PowerPoint).
- Íþrótta og meðferðastyrkir
- Mötuneyti
- Rútur frá helstu byggðarkjörnum
Íslenska
Enska










