
N1
N1 sér fólki og fyrirtækjum fyrir eldsneyti, raforku, rekstrarvörum, veitingum og afþreyingu á þjónustustöðvum félagsins um allt land. Okkar hlutverk er að halda samfélaginu á hreyfingu með persónulegri þjónustu og markvissu vöruúrvali sem uppfyllir kröfur viðskiptavina hvert sem ferð þeirra er heitið.
N1 sparar viðskiptavinum bæði tíma og fyrirhöfn með þéttu neti þjónustustöðva og umbunar þeim með margvíslegum ávinningi af viðskiptunum, m.a. með N1 kortinu sem safnar punktum og nýtast á N1 stöðvum um land allt.
N1 starfar út frá þremur grunngildum sem eru: virðing, einfaldleiki og kraftur. Við sýnum hvert öðru virðingu, veitum þjónustu sem við getum verið stolt af og berum virðingu fyrir umhverfinu. Við leggjum okkur fram við að einfalda líf viðskiptavina okkar og liðsinna með góðu aðgengi að vörum okkar og þjónustu. Við hleypum krafti í samfélagið með öflugri dreifingu og afgreiðslu eldsneytis en einnig með stuðningi við hreyfingu, heilsubót og góð málefni sem auðga mannlífið.
Vel staðsettar þjónustustöðvar og verslanir um land allt, fyrsta flokks dekkja- og smurþjónusta og öflug fyrirtækjaþjónusta gera N1 að sterkri heild sem er mikilvægur hluti af íslensku samfélagi.

Bílaþjónusta N1 leitar að liðsstyrk
Leitum að krafmiklum og áreiðanlegum liðsfélaga með reynslu af smáviðgerðum og smurþjónustu á þjónustuverkstæði okkar við Langatanga í Mosfellsbæ.
Helstu verkefni:
- Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina um smáviðgerðir, smur- og hjólbarða
- Hjólbarðaþjónusta (umfelgun, skipti, viðgerðir o.þ.h)
Hæfniskröfur:·
- Reynsla af sambærilegu starfi (Viðgerðir og smur)
- Sjálfsstæð og skipulögð vinnubrögð
- Gilt bílpróf
- Þjónustulipurð og góð samskipahæfni·
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Íslenskukunnátta kostur en góð enskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi:
- Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
- Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Umsóknarfrestur er til og með 1.mars 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Elí Hreinsson forstöðumaður bílaþjónustu hjá [email protected]
Auglýsing birt16. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Langitangi 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki / Mechanic
Lotus Car Rental ehf.

Vinna á verkstæði
Aflvélar ehf.

Tæknimaður / Technician
Icelandic Glacial

Vélvirki, Vélstjóri, Vélfræðingur.
Diesel Afl ehf.

Steypubílstjóri í Helguvík
Steypustöðin

Mechanical Engineer
Borealis Data Center ehf.

Tækjaumsjón sölusviðs
Kraftvélar ehf.

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Höfuðborgarsvæði
Frumherji hf

Starfsmenn í malbiksútlagningu
Malbikunarstöðin Höfði hf

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Tækjastjórnandi
Malbikunarstöðin Höfði hf

Starfsmaður í prjónasal (iðnmenntun/ reynsla og þekking )
Varma