

Velferðarsvið – Sumarstarf í íbúðarkjarna
Seljudalur er sjálfstæð búseta fyrir fólk með ólíkar og fjölbreyttar stuðningsþarfir. Í Seljudal er sólarhringsþjónustu og unnið eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.
Unnið er á sólarhringsvöktum. Starfsmaður starfar á heimili 6 einstaklinga og aðstoðar við athafnir daglegs lífs, innan og utan heimilis, vegna líkamlegrar og/eða andlegrar fötlunar eins og við á hverju sinni.
Viðkomandi þarf að kunna að halda heimili, vera sveigjanlegur, takast á við krefjandi aðstæður og geta brugðist skjótt við breyttu umhverfi. Mikil nálægð er við íbúa og þarf starfsmaður að taka mið af óskum og þörfum viðkomandi ásamt því að leiðbeina, styðja og hvetja. Starfsmaður þarf að sýna aðgæslu þar sem vinnuaðstæður geta verið krefjandi. Starfið krefst töluverðs sjálfstæðis og frumkvæðis af hálfu starfsmanns og æskilegt að viðkomandi sé orðinn 24 ára.
Æskilegt er að viðkomandi geti unnið frá 15. Maí til 14. september.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við að halda og skapa notalegt heimili.
- Sjá um heimilishald s.s. þrif, almenn tiltekt, þvottur, innkaup o.fl.
- Fæðuval og matseld.
- Persónulegt hreinlæti, s.s. tannhirðu, böðun, leiðbeiningar við val á klæðnaði.
- Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Félagsliðanám eða sambærilegt nám (krafa um u.þ.b. tveggja ára menntun á framhaldsskólastigi)
- Góð Íslensku kunnátta í mæltu og rituðu máli
- Reynsla af umönnunarstörfum og þekking af málefnum fatlaðs fólks er kostur.
- Hæfni og virðing í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi ásamt sveigjanleika, þjónustulund og þolinmæði.
- Bílpróf og geta til að keyra beinskiptan bíl
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Íslenska










