
Iceland Parliament hótel
Við höfum opnað dyrnar að einu glæsilegasta hóteli Reykjavíkur, sem staðsett er við Austurvöll, í hjarta miðborgar og við fótskör Alþingis Íslands.
Iceland Parliament Hotel er rekið sem hluti af einstöku safni hágæða hótela Hilton Worldwide er kallast Curio Collection by Hilton. Hótelið býður gestum sínum upp á fyrsta flokks dvöl og frábæra staðsetningu í hjarta miðborgarklasa samtengdra húsa við Austurvöll, einn merkasta samkomustað Íslendinga fyrr og síðar.
Glæsileg herbergi, fjölbreytt veitingaþjónusta, spa, og sérlega fallegir samkomusalir fyrir öll tilefni gera hótelið að virkum
vettvangi fyrir daglegt líf og hátíðarstundir borgarbúa, og eftirsóttum dvalarstað gesta frá öllum heimshornum.
Iceland Parliament Hotel er hluti af keðju Iceland Hotel Collection by Berjaya. Iceland Hotel Collection by Berjaya starfar í alþjóðlegu umhverfi en félagið rekur fjölbreytt úrval gæða hótela undir ólíkum vörumerkjum. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur fólks með sameiginleg markmið þar sem vinnuumhverfi er fjölbreytt og mikil tækifæri til starfsþróunar. Við leggjum áherslu á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi og erum þakklát gestum okkar, samstarfsfólki og náttúrunni sjálfri. Við stefnum ávallt að því að vera framúrskarandi. Hótelin eru með umhverfisvottun ISO-14001 ásamt því að hafa hlotið jafnlaunavottun.
We have opened the doors to one of Reykjavík's most elegant hotels, located at Austurvell, in the heart of the city center and at the foot of Iceland's Parliament.
Iceland Parliament Hotel is operated as part of Hilton Worldwide's unique collection of highquality hotels called Curio Collection by Hilton. The hotel offers its guests a first-class stay and an excellent location in the heart of the central interconnected houses at Austurvöll, one of the most important gathering places for Icelanders, past and present.
Elegant rooms, variety of restaurant services, spa, and particularly beautiful meeting rooms for all occasions make the hotel an a venue for the daily life and celebrations of the city's people, and a sought-after destination for visitors from all over the world.
.
Iceland Hotel Collection by Berjaya operates in an international environment, the company operates a wide range of quality hotels under different brands. The company employs a close group of people with common goals, where the work environment is diverse and offers many opportunities for professional development. We emphasize cooperation, flexibility and initiative in our work and are grateful to our guests, colleagues and nature itself. We always aim to be excellent. The hotels have environmental certification ISO-14001 as well as having received equal pay certification.

Veitingastjóri - Iceland Parliament/Reykjavík Konsúlat
Veitingastjóri ber heildarábyrgð á rekstri, afkomu og daglegri stjórnun veitingadeildar hótelsins, þar á meðal veitingastaðar, bars, viðburða- og veisluþjónustu og eldhúss. Markmið starfsins er að tryggja arðbæran og skilvirkan rekstur, framúrskarandi þjónustu og upplifun gesta, ásamt skilvirkri nýtingu rekstrarþátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á rekstrarafkomu veitingadeildar, fjárhagsáætlun, tekjum og framlegð.
- Veitir skýra og hvetjandi forystu og leiðir, þróar og þjálfar teymið.
- Ber ábyrgð á mönnun, vaktaskipulagi og framleiðni í samræmi við eftirspurn og rekstrarþörf.
- Fylgist með hráefnis- og launakostnaði, birgðum og sóun í samstarfi við yfirmatreiðslumann.
- Vinnur markvisst að hagræðingu, aukinni sölu og bættri nýtingu rekstrarþátta.
- Tryggir framúrskarandi þjónustu, gæði, matvælaöryggi og jákvæða upplifun gesta.
- Vinnur náið með hótelstjóra og öðrum stjórnendum að rekstri, sölu og þróun hótelsins.
- Fylgist með lykilmælikvörðum, greinir frávik og hrindir í framkvæmd úrbótum.
- Sinna öðrum verkefnum sem starfið krefst.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði framreiðslu eða matreiðslu sem og menntun á sviði rekstrar og/eða sambærileg menntun/reynsla.
- Reynsla af stjórnun veitingadeildar, þar með talið veislu- og viðburðaþjónustu.
- Sterk rekstrar- og fjármálavitund og reynsla af áætlanagerð, kostnaðarstýringu og greiningu.
- Framúrskarandi leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun fjölmenns teymis.
- Skipulagshæfni og geta til að vinna í hröðu og krefjandi starfsumhverfi.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Mjög góð íslensku og enskukunnátta.
Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Thorvaldsensstræti 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skáld Hótel leitar að vaktstjóra í eldhúsi og uppvaskara
Skáld Akureyri, Curio Collection by Hilton

Markaðssérfræðingur
Lauf Cycles hf.

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Tres Locos

Dýralæknir / fagráðgjafi í heilbrigði og velferð dýra
Petmark ehf

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli
Icelandia

Starfsmaður í félagsmálum
Efling stéttarfélag

Yfirmatreiðslumaður á Hótel Búðum
Hótel Búðir ehf.

Viltu leiða eldhúsið okkar á Sauðárkróki?
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Við leitum að metnaðarfullum hótelstjóra
Arnarstapicenter

Söluráðgjafi stóreldhúsa
Fastus

Sous-chef í eldhúsi
Bryggjuhúsið

Matreiðslumaður/Chef
Bastard Brew and Food