Háskólasetur Vestfjarða
Háskólasetur Vestfjarða
Háskólasetur Vestfjarða

Vefstjóri

Háskólasetur Vestfjarða leitar að frumlegum, metnaðarfullum vefstjóra í 40% starf.

Vefstjóri hefur umsjón með öllu sem viðkemur vefmálum Háskólaseturs, þar með talið umsjón með þróun og uppbyggingu vefsíðu og fréttaöflun og fréttaskrifum á vefsíðu, samskipti við fjölmiðla og önnur tilfallandi störf sem snúa að kynningarmálum og innra starfi Háskólasetursins.

Okkur vantar góðan penna sem kann að skrifa jafnt fyrir Vestfirðinga og alþjóðlegt háskóla- og rannsóknarumhverfi. Við leitum að lausnamiðuðum og skapandi einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt og brennur fyrir að kynna alþjóðlegt háskólalíf á Ísafirði.



Helstu verkefni og ábyrgð
  • Efnisgerð fyrir vefsíðu, blog, fréttatilkynningar o.fl. 
  • Samskipti við fjölmiðla og upplýsingagjöf
  • Textagerð, yfirlestur og ritstjórn efnis á íslensku og ensku
  • Vefumsjón og vefþróun
  • Samskipti við vefforritara
  • Samstarf við markaðsstjóra og stuðningur við markaðsherferðir
  • Verkefnastjórn og önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af fréttaöflun og fréttaskrifum
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking og reynsla af vefumsjón

  • Reynsla af markaðsstarfi, stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlum kostur

  • Skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt

  • Færni í samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Auglýsing birt23. maí 2025
Umsóknarfrestur6. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurgata 12, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar