

Vefforritun í TypeScript - sumarstarf
Moodup leitar að sumarstarfsmanni í vefforritun. Í starfinu felst tæknileg aðstoð við viðskiptavini auk vöruþróunar, viðbóta og villulagfæringa hugbúnaðarþjónustunnar. Stakkur er React/Node/Postgres í TypeScript/SQL. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Kostur ef umsækjandi hefur einnig áhuga á hlutastarfi í kjölfarið næsta vetur.
Moodup er ungt og ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem mælir starfsánægju hjá 35.000 starfsmönnum á 100 vinnustöðum. Moodup sendir starfsfólki reglulegar kannanir þar sem það tjáir sig í skjóli nafnleyndar. Stjórnendur geta síðan skoðað, greint, rætt og unnið með niðurstöður mælinga í mælaborði til að bæta starfsumhverfið. Sjá nánar á Moodup.is.
Þrír starfsmenn eru hjá Moodup í dag: framkvæmdastjóri, tæknistjóri og sölustjóri. Sumarstarfið verður undir leiðsögn tæknistjóra. Við erum með skrifstofu í Sjávarklasanum úti á Granda, sem er samvinnurými (e. coworking space) með 70 fyrirtækjum. Í boði er að vinna hluta starfsins í fjarvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri, á netfanginu [email protected].
- Samskipti og tæknileg aðstoð fyrir viðskiptavini (t.d. villulagfæringar og endurbætur á núverandi virkni)
- Þróun nýrrar virkni undir leiðsögn tæknistjóra (bæði fram- og bakendi)
- Önnur tilfallandi verkefni
- Í háskólanámi sem nýtist í starfi (t.d. tölvunar-, kerfis-, verk-, eðlis- eða stærðfræði)
- Grunnþekking á TypeScript, React og SQL
- Færni í mannlegum samskiptum
- Gott vald á rituðu máli bæði á íslensku og ensku
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð











