
Vatnsendaskóli
Í Vatnsendaskóla er lögð rík áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Áhersla er lögð á umhverfis-, rannsóknar- og vettvangsnám. Gildi skólanámskrár byggjast á virðingu, vináttu, samvinnu og skapandi skólastarfi. Sérstök áhersla er lögð á náttúrufræði og raungreinar og útikennsla er ríkur þáttur í skólastarfinu þar sem skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn.
Í Vatnsendaskóla er litið á hvern árgang sem eina heild. Kennarar árgangsins bera sameiginlega ábyrgð á nemendum og vinna saman að því að skipuleggja nám nemenda. Þetta fyrirkomulag stuðlar að sveigjanleika og býður upp á möguleika að breyta hópum í samræmi við viðfangsefni og aukna samkennslu þar sem það á við. Þannig nýtist styrkur og hæfni starfsfólks nemendum.

Vatnsendaskóli óskar eftir umsjónarkennurum á yngsta stig
Vatnsendaskóli óskar eftir umsjónarkennurum á á yngsta stig skólaárið 2026-2027. Unnið er í teymum kennara sem sjá sameiginlega um ábyrgð á árgangi.
Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 530 nemendur og tæplega 90 starfsmenn. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á teymiskennslu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar.Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og er Vatnsendaskóli Réttindaskóli Unicef. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjónarkennsla á yngsta stigi.
- Vinna að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Stuðla að velferð nemenda.
- Þátttaka í teymisvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði.
- Góð færni í að starfa í teymi.
- Þolinmæði og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
- Góð færni í íslensku, bæði töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins.
Auglýsing birt4. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Funahvarf 2, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Kennari á unglingastigi - Tjarnarskóli
Tjarnarskóli ehf

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Smíðakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í 1. bekk – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Grunnskólinn í Hveragerði

Textílkennari - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á miðstig
Garðabær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á yngsta stig
Garðabær