![A4](https://alfredprod.imgix.net/logo/92df80c1-b352-4967-a2b2-26b5200096a5.png?w=256&q=75&auto=format)
![A4](https://alfredprod.imgix.net/cover/bc6a0735-f7e5-492c-a070-60c62cd1077e.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
A4 Egilsstaðir - Vantar þig skemmtilega vinnu?
A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í verslun okkar á Egilsstöðum. Við leitum eftir ábyrgðarfullum, heilsuhraustum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.
Um er að ræða 70 – 100% starfshlutfall og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
· Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar.
· Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
· Önnur almenn verslunarstörf.
Hæfniskröfur og reynsla:
· Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
· Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
· Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
· Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
· Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
· Þekking á vöruúrvali er kostur
· Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
· 18 ára aldur
· Íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 10 júlí 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri, Valný Heba, í síma 580-0080 eða í gegnum netfangið heba@a4.is.
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Vinnupallar ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/a02564c8-b0da-4ecb-aff6-26ed1eb57cd0.png?w=256&q=75&auto=format)
![Sporthúsið Kópavogi](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-0bbc76cd-7014-44cd-bd22-919b7036bb41.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Símstöðin ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/3e5a088e-3672-4cb9-8c7a-c3c81c8db174.png?w=256&q=75&auto=format)
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Arion banki](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-6ac25c0a-c1cc-48db-ab3b-71685b9fd874.png?w=256&q=75&auto=format)
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Kíró ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/cc5ba428-e887-4052-abca-4d233b2fd46b.png?w=256&q=75&auto=format)
![Lyf og heilsa](https://alfredprod.imgix.net/logo/a223321f-12b5-4cdf-80d3-5b92163e3e6d.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hollt & Gott](https://alfredprod.imgix.net/logo/4bc20055-d488-42b6-a0c5-fa7c790ab7d5.png?w=256&q=75&auto=format)
![SSP Iceland](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-4a73ee6f-93da-486b-9543-e1ecc9e88754.png?w=256&q=75&auto=format)
![Orkuverslun](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3b6d22d0-bf82-45e9-a61a-56605b625d28.png?w=256&q=75&auto=format)