
American Style
American Style býður upp á fjölbreyttan og spennandi matseðil fyrir alla fjölskylduna. Í veitingastaðakeðjunni eru fjórir veitingastaðir á höfuðborgarsvæðinu, tveir í Reykjavík, einn í Hafnarfirði og einn í Kópavogi.
Staðirnir eru, eins og nafnið gefur til kynna, innblásnir að bandarískri fyrirmynd og American Style var brautryðjandi á íslenskum markaði þegar staðurinn var á meðal þeirra fyrstu til þess að bjóða gestum sínum fríar áfyllingar á gosdrykki. Þú getur alltaf treyst því að fá gæðahamborgara úr fyrsta flokks hráefni á American Style og góða stemmningu í stíl. Svo er eitt skemmtilegasta leikherbergið á landinu á American Style á Bíldshöfða.

Vaktstjóri í eldhúsi óskast á American Style.
American Style er einn rótgrónasti hamborgarastaður landsins. Við sérhæfum okkur í frábærum gæða hamborgurum og snöggri afgreiðslu í snyrtilegu umhverfi. Hjá okkur er alltaf gaman.
Við leitum að reynslumiklum og öflugum vaktstjóra til að leiða eldhústeymið okkar. Við leggjum mikla áherslu á gæði, ferskt hráefni og góðan starfsanda þar sem allir leggjast á eitt til að skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti okkar.
Við gerum hlutina með STYLE!
Unnið er á vöktum 2/2/3 og um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vaktstjórn á vöktum í eldhúsi.
- Tryggja að gæði, framsetning og afgreiðslutími rétta standist okkar kröfur.
- Undirbúningur og frágangur í eldhúsi.
- Almenn þrif og eftirlit með hreinlæti, gæðakerfum og öryggi í eldhúsi.
- Hvatning og stuðningur við starfsfólk á vakt.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við veitingastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla í eldhúsi.
- 20 ára og eldri.
- Reyklaus kostur.
- Íslensku og enskukunnátta.
- Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og góð samskiptahæfni.
- Skipulagshæfileikar og geta til að vinna undir álagi á annatímum.
- Jákvæðni og dugnaður.
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Stundvísi.
- Geta unnið vaktarvinnu á kvöldin og um helgar.
Fríðindi í starfi
- Matur og drykkur á vinnutíma.
- Þjálfun, fræðsla og námskeið.
- Starfsmannafatnaður.
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiEldhússtörfFramreiðslaMannleg samskiptiMetnaðurReyklaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Vaktstjóri í Eldhús - Vaktavinna
Ráðagerði Veitingahús

Hlutastastarf í mötuneyti í Hafnarfirði
Matarstund

KFC Sundagörðum
KFC ehf.

Mathús Garðbæjar óskar eftir þjónum með reynslu í aukastarf
Mathús Garðabæjar

Looking for a chef at Mathús Garðbæjar full time and part time
Mathús Garðabæjar

Keiluhöllin - Skemmtileg störf í boði, í skemmtilegu umhverfi!
Keiluhöllin Egilshöll

Viltu grilla með okkur?
Hagavagninn