Bláa Lónið
Bláa Lónið er fjölbreyttur, spennandi en umfram allt skemmtilegur vinnustaður. Hjá okkur starfar fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og í ólíkum störfum. Draumastarfið þitt gæti verið handan við hornið.
Undirstaðan í öllu því sem við gerum er að skapa góðar minningar fyrir gesti okkar. Það gerum við með því að hafa gleði og umhyggju að leiðarljósi, ásamt því að bera virðingu fyrir gestum okkar og hvert öðru.
Ánægja starfsmanna og ánægja gesta er samofin. Við leggjum okkur fram við að skapa góðan starfsanda og viðhorfskannanir staðfesta mikla starfsánægju. Við viljum að þér líði vel í vinnunni. Hjá okkur starfa fremstu matreiðslumenn landsins og starfsmenn fá að að njóta þess í fyrsta flokks mötuneyti. Það verður enginn svangur í vinnunni hjá Bláa Lóninu.
Við vinnum með fólki og fyrirtækjum af ólíkum toga. Starfsmenn njóta þessara tengsla. Sem dæmi má nefna kort í líkamsrækt, afslættir af ýmis konar vörum, þjónustu og afþreyingu.
Við ræktum félagslífið með skipulögðum hittingum utan vinnutíma. Við skemmtum okkur, ýmist öll saman eða innan einstakra sviða og deilda. Við erum stærri en þú kannski heldur. Hjá okkur starfa tæplega 700 manns með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við erum ólík, en lærum af hvort öðru. Saman myndum við öfluga heild.
Vaktsjóri á Lava Restaurant / Shift manager Lava Restaurant
Bláa Lónið leitar eftir jákvæðum einstaklingi með sterka þjónustulund í starf vaktstjóra á okkar glæsilega veitingastað Lava Restaurant.
Á staðnum er lögð áhersla á gæði, fagmennsku sem og áhugavert og skemmtilegt starfsumhverfi.
_________________________________________________________________________________________
Blue Lagoon Iceland is looking to hire an optimistic individual with strong customer service orientation for the position of a shift manager at our elegant Lava Restaurant.
We place great emphasis on quality, we value professionalism and keep our workplace interesting and fun.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Yfirsýn yfir veitingastaðnum og starfsfólki
· Samskipti við móttöku Bláa Lónsins, hótel og söludeild
· Þjónusta og samskipti við gesti
· Fagleg þjálfun starfsmanna
· Umsjón með mönnun vakta
· Önnur tilfallandi verkefni
_________________________________________________________________________________________
· Supervision of the restaurant and staff
· Communication with Blue Lagoon front desk, hotel, and sales
· Service and communication with guests
· Assist with training of staff
· Management of staffing shifts
· Various ad hoc tasks
Menntunar- og hæfniskröfur
· Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
· Reynsla og/eða menntun í framreiðslu
· Áreiðanleiki, samviskusemi og stundvísi
· Sjálfstæði, metnaður og yfirvegun til að takast á við krefjandi verkefni
· Góð enskukunnátta nauðsyn og þekking á öðrum tungumálum er kostur
· Góð almenn tölvukunnátta
· Leiðtogahæfni
· Sveigjanleiki í starfi
· Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 25 ára aldri
_________________________________________________________________________________________
· Outstanding customer service orientation and positivity
· Excellent communication and cooperation skills
· Dependability, thoroughness, and punctuality
· Self-reliance and independence in work practices
· Excellent English skills, spoken and written
· Good general computer skills
· Flexibility at work
· Experience as a waiter
· Applicants should preferably be 25 years old.
Auglýsing birt18. október 2024
Umsóknarfrestur3. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaFramúrskarandi
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Norðurljósavegur 2, 240 Grindavík
Starfstegund
Hæfni
FramreiðslaSveigjanleikiÞjónnÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Barþjónar óskast / Bartenders needed
Ölver
Barþjónar í hlutastarf
Tipsy Bar & Lounge
Þjónar í hlutastarf
Tipsy Bar & Lounge
Barback/Busser at Lebowski Bar
Lebowski Bar
Þjónar
Tapas barinn
Hamborgarabúllan Reykjanesbæ, Vaktstjóri
Hamborgarabúllan
Þjónar - fullt starf og hlutastörf
Kringlukráin
100% starf með möguleika á vakstjórastöðu
Just Wingin' it
Veitingastjóri / Restaurant manager
Bon Restaurant
Breakfast attendant 50% - Sand Hotel
Sand H. operation ehf.
Afgreiðslustarf í Hvammsvík / Fullt starf
Hvammsvík Sjóböð ehf
Bartender at KEF Restaurant
Hótel Keflavík & Diamond Suites