

Vaktmaður óskast til starfa
Landsbókasafn Íslands – Háskólabóksafn auglýsir eftir vaktmanni til starfa í hússtjórn safnsins. Hússtjórn sér um viðhald og rekstur Þjóðarbókhlöðunnar, vaktakerfi og búnað hússins, annast samskipti við þjónustuverktaka og sinnir öðrum verkefnum tengdum þjónustu við starfsmenn og gesti hússins. Vaktmenn bera ábyrgð á símsvörun og öryggisgæslu húss, starfsmanna og gesta. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Við leitum að jákvæðum, liprum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa með ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra og getur tekið ákvarðanir skjótt og vel.
Um fullt starf er að ræða. Unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum. Safnið er opið fram á kvöld og um helgar yfir vetrarmánuðina. Sumaropnun er virka daga frá 9-17.
- Fylgjast með hússtjórnarkerfum hvað varðar brunaboð, ljós, hita og raka.
- Fylgjast með eftirlitsskjám og umferð í húsi.
- Koma að ýmsum viðfangsefnum hússtjórnar, s.s. sorphirðu, öryggisgæslu, þrifum, garðyrkju, símsvörun, flokkun pósts og móttöku vara.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- Rík þjónustulund, stundvísi og samviskusemi.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslensku og enskukunnátta.
- Góð tölvukunnátta.
- Gild ökuréttindi.
- Hreint sakavottorð.
Íslenska
Enska



