
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð vorið 1950 og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Vorið 2011 varð Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Umsjónarmaður nótna
Sinfóníuhljómsveit Íslands óskar eftir að ráða umsjónarmann nótna í fullt starf. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir drifkrafti og góðum samskiptaeiginleikum.
Sinfóníuhljómsveit Íslands er ein stærsta menningarstofnun landsins með rúmlega hundrað manna starfslið. Hljómsveitin heldur úti fjölbreytilegri tónleikadagskrá, hljóðritar til innlendrar og erlendrar útgáfu, fer í tónleikaferðir innanlands og utan, auk þess sem hún stendur fyrir metnaðarfullu fræðslustarfi fyrir börn og fullorðna. Aðsetur Sinfóníuhljómsveitar Íslands er í Hörpu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Skilyrði að umsækjendur hafi yfirgripsmikla þekkingu á tónlist og geti lesið nótur.
Góð þekking á tónverkum og tónskáldum er kostur.
Framhaldsmenntun í tónlist æskileg.
Framúrskarandi samskiptahæfni er skilyrði.
Áhersla er lögð á skipulagshæfni, sveigjanleika, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjónarmaður nótna er tengiliður milli nótnasafns og hljómsveitar. Hann sér um að gera nótur aðgengilegar fyrir hljóðfæraleikara, ber ábyrgð á strokaferli og metur þörf fyrir æfingaparta. Hann ber ábyrgð á að nótur standi á hljómsveitarpúltum fyrir æfingar og tónleika og sér um frágang. Umsjónarmaður annast ýmis önnur verkefni.
Auglýsing birt18. nóvember 2022
Umsóknarfrestur5. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Afgreiðslu- og móttökufulltrúi - fullt starf
Verkalýðsfélagið Hlíf

Þjónustu- og sölufulltrúi hjá Myigloo og Leiguskjóli
Leiguskjól

Sölumaður
Garðlist ehf

Þjónustumeistari (50%)
Straumlind ehf

Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Nemi í endurskoðun
Gæðaendurskoðun slf

Þjónustufulltrúi
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur