Hamraskóli
Hamraskóli

Umsjónarkennari í Hamraskóla, tímabundin staða út skólaárið.

Kennsla í Hamraskóla

Vegna forfalla vantar umsjónarkennara á miðstigi í 100 % starf út skólaárið. Í skólanum eru rúmlega 240 nemendur í 1.-7. b.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og skólaþróun. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.hamraskoli.is Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast umsjón og kennslu nemenda í samstarfi við aðra kennara miðstigs.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð tök á íslenskri tungu
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfileikar
  • Þekking á leiðsagnarnámi.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara. Starfshlutfall 100% . Nánari upplýsingar gefur Anna Bergsdóttir í síma 4116800 eða netfangi [email protected]

Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dyrhamrar 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar