

Umsjónarkennari elsta stigi
Við í Hörðuvallaskóla leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennara til að slást í okkar hóp til þátttöku í framsæknu skólastarfi skólaárið 2022-2023.
Hörðuvallaskóli var stofnaður árið 2006 og starfar undir einkunnarorðunum það er gaman í skólanum. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf með framangreind einkunnarorð að leiðarljósi. Skólinn einkennist af góðum starfsanda og vinalegu viðmóti.
Lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og ýmis þróunarverkefni eru í gangi. Í Hörðuvallaskóla eru allir kennarar og nemendur í 5. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.
Áherslur í námi og kennslu eru:
- Leiðsagnanám, þar sem unnið er með viðmið um árangur
- Verkefnamiðað nám
- Samþætt þemanám
- Teymiskennsla og samkennsla
Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leyfisbréf sem kennari
· Góð íslenskukunnátta
· Þekking og reynsla af teymiskennslu er æskileg
· Þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
· Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
· Framsækni í kennsluháttum
· Sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Upplýsingar gefa Þórunn Jónasdóttir skólastjóri í síma 441 3600, 6947127 eða í netpósti [email protected] .











