

Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta eða miðstigi skólaárið 2026-2027.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna kennslu og faggreina kennslu á yngsta stigi/miðstigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, [email protected] og Aðalbjörg Sigurðardóttir, [email protected], í síma 590 2800.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Íslenska










































