

Umsjónarkennari
Auglýst er eftir umsjónarkennara með starfshæfni á elsta stigi. Meðal kennslugreina er stærðfræði og raungreinar.
Ráðið er í starfið frá og með næsta skólaári, 1.ágúst 2022.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Ruth Magnúsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0605
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Þeir sem ráðnir eru til starfa á Fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins mulathing.is











