
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Stekkjaskóli er hannaður og byggður sem teymiskennsluskóli, með vel skipulögðum árgangasvæðum, góðum list- og verkgreinastofum, glæsilegu bókasafni og náttúrufræðistofu með stórum gróðurskála. Byggingin þykir með glæsilegri skólabyggingum á landinu.
Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Umsjónarkennarar óskast
Stekkjaskóli auglýsir eftir umsjónarkennurum í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2026. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennurum sem vilja kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1.100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
- Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðarstekk 10
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Kennari í íslensku sem öðru máli – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Hofsstaðaskóli - umsjónakennari í 1. bekk
Garðabær

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt