Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Umsjónarkennarar á miðstigi

Auglýst er eftir umsjónarkennurum á miðstig í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2024.

Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennurum sem vilja kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Þekking, hæfni og áhugi á upplýsingatækni er mikilvæg ásamt þátttöku í skólaþróun.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
  • Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Reynsla af teymiskennslu kostur
  • Góð þekking á upplýsingatækni mikilvæg
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð færni í mannlegum samskiptum  
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur27. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar