Icelandia
Icelandia
Icelandia

Umsjón hjólaferða og leiðsögn - Icelandic Mountain Guides

Icelandic Mountain Guides by Icelandia leitar að ábyrgum og skipulögðum einstakling til að hafa umsjón með hjólaferðum fyrirtækisins á starfsstöð fyrirtækisins á Ytri-Sólheimum. Starfið felur einnig í sér leiðsögn í hjólaferðum, ATV ferðum og Buggy ferðum, uppbyggingu hjólaferða og þjálfun starfsfólks í meðhöndlun fjallahjóla.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þau sem hafa góða þekkingu á landslagi Íslands, njóta þess að vinna í kraftmiklu umhverfi og vilja leggja sitt af mörkum við að skapa ógleymanlegar stundir fyrir viðskiptavini okkar.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppbygging og umsjón með hjólaferðum.
  • Leiðsögn.
  • Þjálfun samstarfsfólks í meðhöndlun fjallahjóla.
  • Mikil og fjölbreytt samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk.
  • Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
  • Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Reynsla af leiðsögumennsku er mikill kostur.
  • Reynsla og þekking á fjallahjólum og fjallahjólaferðum.
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af stjórnunarstöðum er mikill kostur. 
  • Jákvæðni, snyrtimennska og stundvísi.
  • Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð tölvufærni.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Möguleikar á vöxt í starfi.
  • Gisting í starfsmannabúðum fyrirtækisins á Ytri-Sólheimum.
Auglýsing birt19. júní 2025
Umsóknarfrestur12. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ytri-Sólheimar 1 163037, 871 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fjallahjól / ATV PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar