Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Tollfulltrúi í innflutningsdeild

Pósturinn leitar að nákvæmum og þjónustuliprum tollfulltrúa til starfa í innflutningsdeild á fjármálasviði. Tollfulltrúi ber ábyrgð á vinnslu tollskýrslna og tolltengdra gagna fyrir viðskiptavini Póstsins og á í samskiptum við viðskiptavini og tollayfirvöld. Tollfulltrúi er staðsettur á skrifstofum Póstsins í Reykjavík og heyrir undir deildarstjóra innflutningsdeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnsla og yfirferð tollskýrslna vegna inn- og útflutnings
  • Söfnun og yfirferð fylgigagna, reikninga og annarra upplýsinga vegna tollafgreiðslu
  • Tryggja að skráning sendinga uppfylli kröfur tollayfirvalda
  • Samskipti við viðskiptavini, tollayfirvöld, flutningsaðila og aðra samstarfsaðila
  • Greining og úrlausn frávika, þátttaka í umbótavinnu og eftirfylgni með breytingum á reglum og kröfum tengdum tollafgreiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, tollmiðlaranámskeið er skilyrði
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Reynsla af tollafgreiðslu, þjónustustörfum eða sambærilegum verkefnum er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta. Þekking á SAP eða öðrum tollkerfum er kostur
  • Góð þjónustulund, samskiptahæfni og vönduð vinnubrögð
Auglýsing birt29. október 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar