

Þroskaþjálfi Smáraskóla
Smáraskóli leitar að þroskaþjálfa skólaárið 2020-21
Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 430 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og hefur auk þess hlotið Grænfánann þrisvar sinnum.
Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar og nemendur í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.
Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.
Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi með metnaðarfullu starfsfólki í stoðþjónustu skólans
Starfið er laust nú þegar










