
Sólvangur hjúkrunarheimili
Sóltún hóf störf í janúar 2002 og var fyrsta hjúkrunarheimilið á landinu sem fór í einkaframkvæmd. Við bjóðum upp á hjúkrun, heilsueflingu og stuðning en í dag eru rekin tvö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, Sóltún í Reykjavík og Sólvangur í Hafnarfirði sem opnaði árið 2019. Auk heimilanna tveggja er boðið upp á heimaþjónustu, endurhæfingu, dagdvöl og dagþjálfun.
Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers skjólstæðings er ráðandi í okkar starfi en einnig öryggiskennd íbúanna sem hlýst með sambýli við aðra og sólarhrings hjúkrunarþjónustu.
Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefni á hvoru heimili fyrir sig. Áhersla er lögð á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins.

Þreytt á umferðinni? Aðstoðardeildarstjóri á Sólvangi!
Frábært tækifæri til að hefja stjórnunarferilinn með góðri aðlögun og þjálfun!
Við leitum að hæfum og metnaðarfullum aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sólvangi Hafnarfirði. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á deild. Fullt starf í dagvinnu, 36 stunda vinnuvika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðir og skipuleggur hjúkrun á deild í samráði við deildarstjóra
- Ber meginábyrgð á klínískum viðfangsefnum og þjónustu við íbúa í samræmi við kröfur um þjónustu á hjúkrunarheimilum
- Tryggir gæði og samfellu í þjónustunni í samstarfi við deildarstjóra
- Tekur þátt í fræðslu og kennslu fyrir nýtt starfsfólk og nemendur
- Ber ásamt deildarstjóra ábyrgð á móttöku nýrra íbúa
- Tekur þátt í teymisvinnu og RAI mati
- Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð klínísk færni og fagleg vinnubrögð
- Hjúkrunarreynsla í öldrunarþjónustu
- Góð færni í verkefnastjórnun og teymisvinnu kostur
- Framhaldsnám í hjúkrun er mikill kostur
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
Nánari upplýsingar
veitir Mannauðssvið á tölvupóstfangið [email protected]
Auglýsing birt18. mars 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarnemar á 1., 2. og 3. og 4. ári - Hlutastörf með námi á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í útskriftarteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á ferð og flugi um borgina
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur 60-100% starfshlutfall
Múlabær

Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarnemar á 3.- 4. ári - hlutastörf með námi á speglunardeild Hringbraut
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á speglunardeild Hringbraut
Landspítali

Ás Hveragerði - Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa
Ás dvalar og hjúkrunarheimili

Næringarfræðingur á Næringarstofu
Landspítali

Teymisstjóri í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heilbrigðisgagnafræðingur - Geislameðferð læknar
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á taugalækningadeild
Landspítali