
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 270 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Þjónustustjóri í akstursdeild
Við hjá Terra umhverfisþjónustu erum að leita að skipulögðum, kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi í akstursdeildina hjá okkur, enda mörg spennandi verkefni framundan þegar kemur að uppbyggingu og þróun.
Hlutverk þjónustustjóra er að stýra bílaflota fyrirtæksins og halda uppi frábæru þjónustustigi gagnvart viðskiptavinum.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Hjá Terra umhverfisþjónustu vinnum við í því alla daga að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mönnun á bílaflota fyrirtækisins
- Leiðir hóp bílstjóra
- Hefur yfirsýn og annast útdeilingu á daglegum verkefnum til bílstjóra
- Ábyrgð á afgreiðslu beiðna og skráning samskipta í tölvukerfi
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verkstýringu er skilyrði
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Gott verkvit og álagsstýring
- Frumkvæði í starfi
- Góð íslensku - og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt8. desember 2023
Umsóknarfrestur17. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

Garðyrkjufræðingur
Garðlist ehf

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Teymisstjóri launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Senior Mechanic - Campervan Workshop Supervisor
Indie Campers

Housekeeping / Cleaning
Heimaleiga