

Þjónustustjóri
Hreyfing leitar að metnaðarfullum einstakling í hlutverk þjónustustjóra móttöku og spa.
Þjónustustjóri ber ábyrgð á rekstri móttöku og spa. Þjónustustjóri leiðir sölu og þjónustu, er fyrirmynd síns teymis og leggur metnað í að halda uppi árangursríkum liðsanda og fagmennsku.
Öflugur þjónustustjóri gegnir lykilhlutverki í því að skapa hlýlegt og faglegt umhverfi og tekur þátt í því að þróa áfram heilsurækt sem státar af gæðum og einstakri upplifun.
Eiginleikar sem við leitum eftir:
-
Reynsla af leiðtogahlutverki í þjónustu, t.a.m. úr veitinga- eða verslunarstarfsemi
-
Framúrskarandi samskiptafærni og geta til þess að leiða lið
-
Gott auga fyrir tækifærum til þess að gera betur og frumkvæði til að fylgja þeim eftir
-
Ástríða fyrir heilbrigðu líferni og löngun til þess að sjá aðra vaxa
Helstu verkefni:
-
Umsjón með daglegum rekstri móttöku og spa
-
Leiðsögn og stuðningur við starfsfólk, auk umsjónar með vöktum starfsfólks
-
Þjálfun nýrra starfsmanna og eftirfylgni með gæðum þjónustu
-
Virk þátttaka í framúrskarandi þjónustu við meðlimi Hreyfingar

