Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Þjónustufulltrúi - sumarstarf

Suðurnesjabær auglýsir eftir þjónustufulltrúa í 90% sumarstarf.

Þjónustufulltrúi tekur á móti íbúum og gestum, veitir upplýsingar, svarar símtölum og sinnir almennri afgreiðslu í móttöku sveitarfélagsins. Starfið er fjölbreytt og lifandi og krefst góðrar samskiptahæfni, frumkvæðis og öflugrar þjónustulundar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf
  • Aðstoðar íbúa og aðra viðskiptavini við að koma erindum sínum á framfæri við rétta aðila
  • Móttaka, skráning og svörun erinda
  • Sinnir skjalavinnslu í samráði við skjalastjóra, s.s. bókun mála og erinda sem koma með tölvupósti.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð þjónustulund, samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2026.

Starfsferilskrá fylgir umsókn ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðs- og kjaradeild, [email protected]

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Miðnestorg 3, 245 Sandgerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar