
Jónar Transport
Jónar Transport bjóða upp á öflugar heildarlausnir fyrir fyrirtæki í flutningum til og frá landinu.
Jónar Transport bjóða upp á flutninga bæði í sjó og í lofti, til og frá Íslandi og aðstoð við alla skjalagerð er tengist flutningum.
Í þessu felst að Jónar Transport getur látið sækja eða flytja vöruna heim að dyrum birgja nánast hvar sem er í heiminum, komið henni í skip eða flugvél eftir þörfum og séð um alla tilheyrandi skjalameðhöndlun erlendis og hérlendis, ásamt þeirri vöruhúsa- og akstursþjónustu sem til þarf.
Það færist í vöxt að viðskiptavinir sjá sér hag í því að kaupa heildarþjónustu í flutningum með því að sendingar séu afhentar frá dyrum til dyra, (svokölluð door to door þjónusta). Í raun er þetta bein afleiðing almennrar þróunar í vörustjórnun sem felst í því að efla tengslin og stuðla að auknu upplýsingaflæði í aðfangakeðju fyrirtækja.
Jónar Transport skapa virðisaukandi þjónustu með því að koma inn í aðfangakeðju fyrirtækja með heildarlausnir í flutningum og vöruhúsamálum þannig að fyrirtækin sjálf geta beitt sér betur að sínum sterkustu hliðum.

Þjónustufulltrúi í tolladeild
Jónar Transport leita að áhugasömum, jákvæðum og metnaðarfullum starfsmanni í starf afgreiðslu- og þjónustufulltrúa í tolladeild.
Helstu verkefni:
- Tollskjalagerð og frágangur á vörureikningum
- Útgáfa flutningstengdra skírteina
- Innheimta flutningsgjalda og annarra aðflutningsgjalda
- Samskipti við tollayfirvöld, farmlytjendur, umboðsmenn innanlands og erlendis, skrifstofur okkar erlendis og erlenda samstarfsaðila
- Þjónusta og aðstoð við viðskiptavini
- Umsjón með heimakstri
Hæfnikröfur:
- Stúdentspróf og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af tollafgreiðslu og þekking á tollalögum er kostur
- Gott vald á ensku og íslensku í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á Navision er kostur
- Heiðarleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ferilskrá ásamt greinargóðu kynningarbréfi.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Pálsson, framkvæmdarstjóri í [email protected]
Auglýsing birt9. september 2021
Umsóknarfrestur23. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kjalarvogur 7-15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmaður forstjóra
Intellecta

Þjónustufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Starfskraftur í Þjónustuver - Afleysing
Ó.Johnson & Kaaber

Account Manager
Teitur

Þjónustufulltrúi | Dineout & Sinna
Dineout ehf.

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Þjónustu- og sölufulltrúi hjá Myigloo og Leiguskjóli
Leiguskjól

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust