
Landfari ehf.
Landfari ehf. er með umboð fyrir Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi sem hafa í gegnum árin verið meðal mest seldu atvinnutækja landsins. Fyrirtækið er systurfélag bílaumboðsins Öskju, Dekkjahallarinnar og bílaumboðsins Unu. Móðurfélagið er Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.
Mercedes-Benz vöru- og hópferðabílar eru þekktir fyrir gæði og áreiðanleika og eru mörg af öflugustu fyrirtækjum landsins notendur þeirra, hvort sem er í vörudreifingu, jarðvinnu, ferðaþjónustu eða þjónustuviðhaldi. Landfari er þjónustuumboð fyrir Hammar gámalyftur og sölu- og þjónustuumboð fyrir Wabco, Knorr-Bremse, VAK vagna og Faymonville vagna.
Höfuðstöðvar Landfara eru til húsa í Desjamýri 10 í Mosfellsbæ en auk þess hefur Landfari starfsstöðvar í Klettagörðum 5 og einnig í Álfhellu 15 Hafnarfirði.

Þjónustufulltrúi
Landfari ehf óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa í verkstæðismóttöku sína í Desjamýri 10 í Mosfellsbæ til að þjónusta viðskiptavini Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla.
Landfari ehf. er með umboð fyrir Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi sem hafa í gegnum árin verið meðal mest seldu atvinnutækja landsins. Fyrirtækið er systurfélag bílaumboðsins Öskju, Dekkjahallarinnar og bílaumboðsins Unu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Ráðgjöf og tilboðsgerð
- Samvinna við þjónustuteymi verkstæðis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og mikil samskiptahæfni
- Færni í teymisvinnu
- Reynsla af sambærilegum störfum
- Þekking á bílum kostur
- Góð tölvukunnátta
- Gott vald á Íslensku í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt25. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Desjamýri 10, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
Microsoft OutlookSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust