
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi. Fyrirtækið var stofnað haustið 2000 og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Gildi Eignaumsjónar eru framsækni, öryggi og fagmennska og markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu þar sem áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla.
Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda. Hjá okkur starfa nú um 65 einstaklingar, öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr teymavinnu og góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og umhverfi sem öllum líði vel í. Vinnan er bæði krefjandi og skemmtileg og liðsheildin góð, sem skilar sér í árangri og líflegu vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fagmennsku. Eignaumsjón leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem efla það og styrkja. Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum.

Þjónustufulltrúi
Óskum eftir að ráða fjölhæfan þjónustufulltrúa.
Óskum eftir að ráða drífandi og jákvæðan þjónustufulltrúa í þjónustuteymi Eignaumsjónar. Við leitum að áhugasömum og lífsglöðum starfsmanni, sem hefur gaman af mannlegum samskiptum og vill auka getu sína í síbreytilegu og lifandi starfsumhverfi meðal góðra samstarfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsreynsla og/eða hagnýt menntun
Þekking á rekstri og viðhaldi fasteigna kostur
Þekking á lögum um fjöleignarhús kostur
Góð almenn tölvuþekking og færni
Góð íslenskukunnátta og framsetning á texta og að vinna með tölur
Áhersla er lögð á áhugasemi, þjónustulund, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð, frumkvæði og eftirfylgni, auk færni í mannlegum samskiptum
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi/teymisvinnu
Helstu verkefni og ábyrgð
Upplýsingagjöf og samskipti við viðskiptavini
Úrlausn fjölbreyttra verkefna fyrir viðskiptavini
Samskipti við þjónustuaðila og verktaka f.h. viðskiptavina
Skráning á gögnum og skjalavinnsla
Önnur fjölbreytt verkefni
Auglýsing birt20. júlí 2022
Umsóknarfrestur15. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraJákvæðniSamviskusemiStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknistarf í slökkvitækjaþjónustu á Akureyri
Securitas

Starf í þjónustuveri
Ölgerðin

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Þjónustufulltrúi Noona Iceland
Noona Iceland

Þjónusturáðgjafi - Askja og Dekkjahöllin í Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Sumarstörf í þjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli 2027
Icelandair

Við leitum að þjónusturáðgjafa í útibú okkar á Akureyri
Arion banki

Viðskiptaráðgjafi – innleiðing og þjónusta
Elvo lausnir ehf.

Gerðu bílaáhugann að starfi
Hekla

Þjónustufulltrúi í hjálpartækjateymi
Fastus

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi
Aðföng

Fulltrúi starfsánægju og skrifstofu
Wise lausnir ehf.