
DS lausnir
DS lausnir ehf. veita verktökum og byggingariðnaðinum fljóta og góða þjónustu. Áhersla er á að hugsa í lausnum. Fyrirtækið leigir út og selur krana af ýmsum gerðum, rekur kranaverkstæði og hefur til reiðu nýja og notaða varahluti í flestar gerðir krana. Einnig selur fyrirtækið vinnulyftur og vindhraðamæla.

Söluráðgjafi óskast til DS lausna, Hafnafirði.
DS lausnir í Hafnafirði óska eftir öflugum liðsmanni í teymið.
DS Lausnir sérhæfa sig í stærri hífingar- og flutnings verkefnum ásamt því að leigja, þjónusta og selja byggingakrana, kranabíla, vörubílskrana, varahluti og tengdan búnað.
Við leitum að einstaklingi í þjónustu og sölu varahluta ásamt nýjum og notuðum tækjum.
Um spennandi starf er að ræða í traustu fyrirtæki.
DS lausnir hvetur áhugasama einstaklinga að sækja um störf óháð kyni, aldri og uppruna.
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
- Samstarf við birgja og þjónustuaðila
- Varahlutaleit, kaup og sala varahluta og aukabúnaðar.
- Sala og kaup á nýjum og notuðum byggingakrönum, bílkrönum og kranabílum
- Uppbygging og þróun viðskiptasambanda
- Tilboðsgerð og eftirfylgni með sölu og innflutningi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tæknileg þekking á tækjum og vélbúnaði
- Reynsla af vélavinnu er kostur
- Reynsla af sölu er kostur
- Reynsla úr verktaka eða byggingageira kostur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur, s.s. bifvélavirki, vélfræðingur/ verkfræðingur
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og spennandi starf
- Gott starfsumhverfi
- Tækifæri til að þróast í starfi
- Samkeppnishæf laun
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur11. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
ÞýskaNauðsyn
Staðsetning
Breiðhella 22, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiBílvélaviðgerðirSölumennskaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning