Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Þjónusta í apóteki - Bíldshöfði

Apótekarinn leitar að þjónustulunduðum starfsmanni til þess að sinna þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini fyrirtækisins í Apótekarinum Bíldshöfða 9. Um framtíðarstarf er að ræða.

Laust er til umsóknar starf alla virka daga með vinnutíma kl 8-13. Viðkomandi þarf að geta unnið lengur stöku daga í forföllum.

Möguleiki er á föstum helgarvöktum í öðrum útibúum félagsins með þessu starfi.

Starfssvið:

-Ráðgjöf til viðskiptavina

-Almenn þjónusta og sala

Hæfniskröfur:

-Reynsla af starfi í apóteki er kostur

-Söluhæfileikar

-Mikil þjónustulund og jákvæðni

-Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði

-Lágmarksaldur er 20 ára

Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.

Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.

Auglýsing stofnuð23. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Bíldshöfði 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar