
Bílanaust
Stefna Bílanausts er að vera leiðandi fyrirtæki á innanlandsmarkaði á sviði varahluta og bílatengdra vara. Fyrirtækið byggir á traustum grunni sem rekja má aftur til ársins 1962.
Bílanaust rekur sex verslanir. Stærsta verslunin er á Bíldshöfða 12 í Reykjavík en einnig eru verslanir í Hafnarfirði, Keflavík, á Selfossi og Akureyri.
Skrifstofur eru til húsa á Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður.
Jafnframt rekur fyrirtækið öfluga söludeild og fyrirtækjaþjónustu með reynslumiklum sölumönnum og vörumerkjastjórum.
Bílanaust kappkostar að bjóða vörur frá leiðandi birgjum á samkeppnishæfu verði.
Sem dæmi um þekkt vörumerki sem Bílanaust dreifir eru Bosch, Varta, Nipparts, ABS, Hella, NGK, MAPCO, Denso, FRAM, Osram, Turtle Wax og Mothers.

Sölustjóri heildsölu
Bílanaust óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi aðila í fullt starf sölustjóra heildsölu.
Í boði er starf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Starfið felur í sér heimsóknir og sölu á rekstrarvörum og varahlutum til verkstæða og fyrirtækja, auk ráðgjafar og þjónustu við viðskiptavini.
Markmið starfsins er að leita stöðugt leiða til þess að auka sölu sem bætir jafnframt árangur.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af sölustörfum og áhuga á mannlegum samskiptum, reynsla af mannaforráði er kostur.
Vinnutími er 8:00-17:00 mánudaga til föstudaga.
Leitað er að áhugasömum, ábyrgum, jákvæðum, sjálfstæðum og þjónustulunduðum aðila sem getur hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á rekstrarvörum og varahlutum til verkstæða, fyrirtækja og endursöluaðila.
- Umsjón og stýring á söludeild heildsölu
Menntunar- og hæfniskröfur
- 20 ára eða eldri.
- Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega.
- Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Skipulagsfærni.
- Hreint sakavottorð
- Reynsla af sölumennsku er kostur
- Reynsla af mannaforræði er kostur
Auglýsing birt16. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bæjarhraun 12, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verslunarstjóri á þjónustustöð Olís í Garðabæ
Olís ehf.

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri
Sýn

Starfsmaður í Kjötdeild (hlutastarf) - Krónan Akureyri
Krónan

Þjónustumiðja trygginga leitar að liðsauka á Egilsstöðum
Arion banki

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg

Söluráðgjafi Vatn og veitna, Selfossi
Vatn & veitur

Dineout stækkar söluteymið!
Dineout ehf.

Sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Nova – Smáralind / þjónustuver
Nova

Tryggingaráðgjafi
Tryggingar og ráðgjöf ehf.