
Hjallastefnan leikskólar ehf.
Hjallastefnan ehf er framsækið menntafyrirtæki í eigu áhugafólks um skólastarf. Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands. Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta. Skólar Hjallastefnunnar starfa ákaflega sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Gleði er fagmennska!!
Hjallastefnu leikskólinn Hnoðraholt í Garðabæ leitar að öflugum leikskólakennara til starfa í 100% stöðu sem kjarnastjóri. Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennari með leyfisbréf
Góð samskiptahæfni
Góð íslensku kunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á kjarnanum
Er hluti af stjórnendateymi leikskólans
Fríðindi í starfi
Sveigjanleiki í starfi
Auglýsing birt7. júní 2022
Umsóknarfrestur15. júlí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
KennariSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)



