

Talmeinafræðingur - Þorláksskóli
Þorláksskóli er nýr sérskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa haustið 2026 í Garðabæ. Við leitum að talmeinafræðingi sem vill taka þátt í að byggja upp faglegt, öruggt og styðjandi skólaumhverfi fyrir einhverf börn þar sem hvert barn fær að vaxa á sínum forsendum.
Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir starf sitt á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun þar sem öryggi, tengsl og skynúrvinnsla mynda grunn að námi og þroska. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, fyrirsjáanlegt og stuðningsríkt umhverfi og traust tengsl sem styðja þátttöku, vellíðan og sjálfstæði nemenda.
Helstu verkefni:
· Talþjálfun fyrir nemendur
· Stuðningur við notkun tjáskiptalausna og tjáskiptaaðferða
· Þjálfun í nærumhverfi barnsins
· Ráðgjöf til kennara og foreldra
· Samstarf við aðra fagaðila
Einnig getur starfið þróast með uppbyggingu ráðgjafar og fræðslu tengdri starfsemi skólans.
Við leitum að einstaklingi sem:
· Hefur leyfi til starfa sem talmeinafræðingur
· Hefur áhuga á að starfa með einhverfum börnum
· Hefur áhuga á þverfaglegu starfi
· Hefur jákvætt viðhorf, þolinmæði og góða samskiptahæfni
· Getur unnið í teymi og tekið þátt í uppbyggingu nýs skólastarfs
· Sýnir frumkvæði, fagmennsku og skipulagshæfni
· Hefur áhuga á að læra og þróast í starfi
Við leggjum ríka áherslu á faglegt starfsumhverfi, stuðning við starfsfólk og vinnustaðamenningu þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi.
Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessari vegferð með okkur hvetjum við þig til að senda umsókn.
Sendið ferilskrá og stutt kynningarbréf
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026.
Nánari upplýsingar veitir Vigdís Gunnarsdóttir, [email protected]
Heimasíða: www.thorlaksskoli.is
Íslenska