Norlandair
Norlandair

Tæknistjóri

Norlandair leitar eftir öflugum og reynslumiklum aðila í starf tæknistjóra hjá Part-145 viðhaldsverkstæði félagsins á Akureyri.

Starfið felur meðal annars í sér stjórnun og eftirfylgni með viðhaldsverkefnum, mannafla, tæknilegum málefnum, aðföngum, búnaði og verklagi. Tæknistjóri vinnur jafnframt náið með öðrum stjórnendum og starfsfólki Norlandair og kemur að samskiptum við viðskiptavini, birgja og eftirlitsaðila eftir því sem við á.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra daglegri tæknilegri starfsemi viðhaldsverkstæðis
  • Tryggja að viðhald sé framkvæmt samkvæmt gildandi reglum, samþykktum verklagsreglum og Maintenance Organisation Exposition (MOE)
  • Tryggja að nægilegur og hæfur mannafli, aðstaða, verkfæri, búnaður og önnur aðföng séu til staðar fyrir starfssemina
  • Yfirsýn yfir skipulagningu og framkvæmd viðhalds og tryggja fagleg og örugg vinnubrögð
  • Stuðla að virkri öryggis- og gæðamenningu innan verkstæðisins
  • Eftirfylgni tæknilegra mála og þeim úrbótum sem tengjast starfseminni
  • Náið samstarf með öðrum stjórnendum og starfsfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt EASA Part-66 flugvirkjaskírteini
  • Að lágmarki 5 ára viðeigandi starfsreynslu, þar af að minnsta kosti 2 ár í flugiðnaði í viðeigandi starfi
  • Góð reynsla og þekking á viðhaldi loftfara, viðhaldsaðferðum, flugöryggiskröfum og öruggum starfsháttum
  • Góð þekking á EASA Part-145 og öðrum viðeigandi reglum á sviði viðhalds og flugöryggis
  • Þekking á Human Factors, öryggisstjórnun (SMS), compliance monitoring og þeim stjórnunarkerfum sem gilda um Part-145 starfsemi
  • Vilji og geta til að afla sér viðeigandi þekkingar á þeim loftförum og/eða íhlutum sem falla undir starfssvið verkstæðisins;
  • Haldgóð reynsla af stjórnun og leiðtogahæfni
  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og yfirsýn í hröðu og ströngu starfsumhverfi
  • Rík færni til samskipta og samstarfs
  • Góð íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FlugvélavirkjunPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)