Ferro Zink hf
Ferro Zink hf
Ferro Zink hf

Tæknimaður með sölu- og þjónustuáhuga.

Ferro Zink ehf óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í framleiðsludeild félagsins.

Starfsmaður þarf að vera tilbúinn að takast á við fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi verkefni með góðri liðsheild, þar sem hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg.

Starfið felst í þjónustu við viðskiptavini á stöðluðum lausnum ásamt sérútfærslum og aðlögunum á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

Ferro Zink er bæði innflytjandi á stáli og rekur tvær verslanir og eru þær fagmannaverslanir sem þjónusta iðnað og leggja áherslu á gæðavörur.

Ef þú ert framsækinn og faglegur aðili með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sala og tilboðsgerð ásamt verkefnstýringu.

Greining á þörfum viðskiptavina.

Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda.

Hönnun, teiknivinna og vöruþróun.

Þáttaka í innkaupa- og ákvarðanaferlum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun innan véla og stál geirans s.s. verk-, tækni-, vél- eða iðnfræði.

Æskilegt að hafa reynslu í Auto-Cad, Inventor.

Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Góð íslensku- og enskukunnátta.

Almenn tölvukunnátta nauðsynleg.

Metnað til að ná árangri í starfi.

Frumkvæði.

Fríðindi í starfi

Niðurgreiddur hádegismatur.

Sveigjanleiki með að fara milli starfsstöðva félagsins.

Auglýsing birt14. júlí 2026
Umsóknarfrestur14. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árstígur 6, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar