Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.

Óskað er eftir kraftmiklum starfskrafti í ljósadeild Þjóðleikhússins. Helstu verkefni eru uppsetning, rekstur og viðhald ljósabúnaðar fyrir sýningar, æfingar og aðra viðburði á vegum leikhússins.

Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning, rekstur og viðhald ljósabúnaðar
  • Forritun ljósakerfa
  • Tæknivinna vegna æfinga, sýninga og annarra viðburða
  • Aðstoð við uppsetningar og breytingar á sýningum
  • Almenn verkefni innan sviðs- og ljósadeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ljósatækni, viðburðatækni eða sambærilegum störfum
  • Góð þekking á ljósabúnaði og ljósastýringarkerfum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs
  • Öryggisvitund og fagleg vinnubrögð
  • Reynsla af leikhússtarfi er kostur
  • Fagbréf atvinnulífsins í ljóstækni eða sambærileg þekking og reynsla er kostur
  • Menntun í rafvirkjun, rafeindavirkjun eða skyldum greinum er kostur
  • Fagbréf í tímabundnum burðarvirkjum eða sambærileg þekking og reynsla er kostur
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar