![Sýn](https://alfredprod.imgix.net/logo/e47d604a-cbee-494d-aeeb-c7ad0bde838a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Sýn](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-21d3c4a7-396f-4aa3-9118-2d8f24cc166d.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Tæknilegur vörustjóri
Við leitum að öflugum sérfræðingi í hlutverk tæknilegs vörustjóra. Starfið felur í sér þátttöku í þróun og innleiðingu á upplýsingatæknilausnum fyrir viðskiptavini Sýnar. Verkefnin eru fjölbreytt og unnin í náinni samvinnu við þróunarteymi, viðskiptadeildir og sérfræðinga í einingum Sýnar til að tryggja að vörur og viðskiptaferlar standist bæði tæknilegar og viðskiptalegar kröfur. Viðkomandi mun tilheyra Upplýsingatæknisviði en á sviðinu starfa metnaðarfull teymi sem sérhæfa sig í hugbúnaðartengdum verkefnum Sýnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í mótun vörusýnar og stefnu
- Forgangsröðun verkefna í samstarfi við ábyrgðar- og hagsmunaaðila
- Heldur utan um, skilgreinir verkefni og stýrir þróun á lausnum ásamt liðsstjóra
- Upplýsingagjöf til hagsmunaaðila og stjórnenda
- Yfirsýn yfir verkefni
- Tryggja gæði og öryggi lausna
- Tryggja framkvæmd prófana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, verkefnastjórnun eða önnur sambærileg menntun.
- Framúrskarandi skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Lausnamiðað hugafar og sveigjanleiki
- Þekking á Salesforce er mikill kostur
- Sýnir frumkvæði og er vel að sér í tækni
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi
- Góð færni í ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 16.febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Sigurjónsson, [email protected], framkvæmdastjóri upplýsingatækni.
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.
Hver erum við?
Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og dótturfélagið Endor. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)