Ísteka
Ísteka

Tækni- og viðhaldsstjóri óskast

Ísteka auglýsir eftir tækni- og viðhaldsstjóra og leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi í starfið

Menntunar- og hæfniskröfur
Próf í iðn-/tæknigreinum eða umfangsmikil reynsla á því sviði.
Þekking á skipulagningu verkefna, stjórnun verklegra framkvæmda, ásamt reynslu af EHS málum er ákjósanleg.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum, getu til að vinna sjálfstætt og takast á við fjölbreytt verkefni, sem krafist geta verklegrar kunnáttu, handlagni, og útsjónarsemi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með fasteignum, s.s. að halda fasteignum í góðu ástandi með reglubundnu eftirliti og umsjón með viðhaldi og framkvæmdum.
Umsjón og eftirlit með tæknikerfum, s.s. loftræsti- og rafmagnskerfum.
Umsjón með umhverfi fasteigna, s.s. bílastæða, gróðurs og opinna svæða.
Umsjón með bifreiðum og tengivögnum, s.s. að viðhald og regluleg ástandsskoðun fari fram.
Verkstjórn og utanumhald þegar kemur að þrifum og meðhöndlun úrgangs.
Tækni- og viðhaldsstjóri er virkur þátttakandi í að uppfylla skuldbindingar fyrirtæksins varðandi öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál (EHS).
Auglýsing birt25. nóvember 2022
Umsóknarfrestur10. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grensásvegur 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar