
ÍAV
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf. voru stofnaðir 31. maí 1997 með yfirtöku ákveðinna eigna og skuldbindinga, ásamt öllum verksamningum Íslenskra aðalverktaka sf. sem þá höfðu starfað sem verktakar á varnarsvæðum hérlendis allt frá 1954.
Frá þeim tíma til dagsins í dag hafa orðið verulegar breytingar á rekstri og stjórnskipulagi félagsins en félagið stefnir markvisst að því að vera alhliða fyrirtæki á öllum sviðum mannvirkjagerðar bæði hvað varðar nýsköpun, fjármögnun og framkvæmdir.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar, jarðgangagerðar, jarðvinnu eða gatnagerð.
ÍAV hf er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss sem var stofnað 1922. Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðsvegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar.

Tækja- og verkamenn á Suðurnesjum
ÍAV óskar eftir að ráða tækjamenn og verkamenn með reynslu af lagnavinnu til starfa á Suðurnesjum.
ÍAV leggur mikið upp úr góðri mætingu og reglusemi. Góð laun í boði og góð aðstaða fyrir starfsmenn.
Vinna hefst kl. 07:30 - 16:15 og 7:30 til 15:00 á föstudögum
ÍAV hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur
Tækjaréttindi
Reynsla af lagnavinnu í jörðu
Auglýsing birt11. ágúst 2021
Umsóknarfrestur10. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar





