
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Hjá sýslumönnum nálgast þú ýmsa þjónustu ríkisins, ýmist rafrænt eða með komu á eina af mörgum skrifstofum sýslumanna víða um land. Nýr kafli er hafinn í sögu sýslumannsembætta sem rekja má til tækniframfara í samfélaginu og eru embættin á fleygiferð í stafrænni vegferð og þróun þjónustu til viðskiptavina.
Hjá embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu starfa um 100 manns og íbúar umdæmisins eru um 242.000.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu annast umsóknir um vegabréf og ökuskírteini, sinnir fjölskyldumálum, veitir leyfi til ættleiðinga, hefur eftirlit með skráningu heimagistinga, sinnir ýmsum opinberum skráningum svo sem þinglýsingum, auk fleiri verkefna.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða matreiðslumann
Leitað er að öflugum matreiðslumanni til að matreiða fjölbreyttan og heilsusamlegan hádegismat fyrir starfsfólk.
Markmið með rekstri mötuneytis er að sem flestir starfsmenn borði þar daglega. Til að ná því markmiði útbúa matreiðslumaður og aðstoðarmaður hollan og fjölbreyttan mat sem unninn er frá grunni, mat sem uppfyllir lýðheilsumarkmið embættis landlæknis og höfðar til sem flestra starfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón, rekstur og skipulagning mötuneytis
- Undirbúningur, skipulag og framreiðsla máltíða og annarra veitinga
- Dagleg verkstjórn aðstoðarmanns
- Innkaup og rekstur mötuneytis á sem hagkvæmastan hátt
- Fylgjast með þróun og breytingum á sviði matseldar
- Að aðstæður og búnaður í eldhúsi og matsal séu í samræmi við kröfur um hollustuhætti, hreinlæti og aðrar reglur sem um slíka starfsemi gilda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Matartæknanám skilyrði, sveinspróf eða meistarapróf í matreiðslu æskilegt
- Reynsla af rekstri eldhúss fyrir stóra hópa
- Fagleg vinnubrögð og skipulagshæfni
- Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Snyrtimennska
- Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur
- Sjálfstæði, útsjónarsemi
- Almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Matreiðsluiðn
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

VISS, vinnu og hæfingarstöð á Selfossi óskar eftir aðstoðarmatráð
Sveitarfélagið Árborg

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar

Aðstoð í eldhúsi
Aðföng

Pizzubakari / Pizza chef
NEÓ Pizza

Chef / Cook / Kokkur
North West Restaurant & Guesthouse

Vanur eldhússtarfsmaður – Experienced kitchen worker
Stúdentakjallarinn

Starfsmaður í mötuneyti (50% hlutastarf)
Sælkeramatur ehf.

Chef
Kársnes ehf.

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Tres Locos

Kokkur / Chef at Funky Bhangra
Funky Bhangra

vaktstjóri í eldhúsi / shift manager in kitchen
Steikhúsið